4 leikmenn Hvatar á hæfileikamóti N1 og KSÍ

Leikmennirnir úr Hvöt Andri Snær Björnsson, Eyjólfur Örn Þorgilsson, Gunnar Bogi Hilmarsson og Trausti Þór Þorgilsson hafa verið boðaðir til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir drengi á Norðurlandi.
Æfingin fer fram miðvikudaginn 18. janúar næstkomandi kl. 12:45 í Boganum á Akureyri. Lúðvík Gunnarsson Umsjónamaður Hæfileikamótunar sér um þetta verkefni fyrir KSÍ.
 
Andri Snær er varnarmaður sem gefst aldrei upp, lætur finna fyrir sér á vellinum og er öruggur í öllum sínum aðgerðum.
 
Eyjólfur Örn er stór og stæðilegur varnarmaður sem er öruggur á boltann og frábæran leikskilning.
 
Gunnar Bogi er bráðefninlegur markmaður, hikar ekki einn á móti einum og er góður á milli stangana.
 
Trausti Þór er eldfljótur sóknarmaður sem ógnar sífelt með hraða sínum og krafi. Ákefð hans skilar oftast marki eða stoðsendingu.
 
Við óskum strákunum góðs gengis.
Áfram Hvöt.